Glímusamband Íslands

115. Íslandsglíman fer fram í íþróttamiðstöðinni í Búðardal laugardaginn 11. apríl klukkan 14:00.
Þar mun okkar fremsta glímufólk etja kappi og reyna að ná í eftirsóttasta verðlaunagrip glímunnar.

Í kvennaflokki er keppt um Freyjumenið en hlýtur sigurvegarinn sæmdarheitið glímudrottning Íslands.
Í karlaflokki er keppt um Grettisbeltið, elsta verðlaunagrip á Íslandi, og hlýtur sigurvegarinn sæmdarheitið glímukóngur Íslands.

Fróðleiksmolar um Íslandsglímu

– Fyrsta Íslandsglíman fór fram á Akureyri árið 1906.
   Fyrsti glímukóngur Íslands var Ólafur Valdimarsson frá Vopnafirði.

– Fyrsta Íslandsglíma kvenna fór fram 18. júní 2000. Þá kepptu ellefu stúlkur um Freyjumenið og hafa aldrei verið fleiri.
   Inga Gerða Pétursdóttir frá Reykjahlíð í Mývatnssveit varð fyrsta glímudrottning Íslands.

– Svana Hrönn Jóhannsdóttir og Marín Laufey Davíðsdóttir hafa báðar unnið Freyjumenið sex sinnum.

– Ármann J. Lárusson hefur oftast unnið Grettisbeltið, eða fimmtán sinnum á árunum 1952-1967.

– Núverandi glímudrottning er Kristín Embla Guðjónsdóttir frá Reyðarfirði, en hún hefur unnið mótið fjórum sinnum.

– Núverandi glímukóngur er Hákon Gunnarsson frá Reyðarfirði, en hann varð glímukóngur í fyrsta sinn 2025. 

 

Myndir frá Íslandsglímu 2025 
Myndir: Antanas Šakinis Photography