115. Íslandsglíman fór fram í íþróttamiðstöðinni í Búðardal í fyrsta sinn í dag.
8 keppendur voru skráðir í karlaflokki og 3 í kvennaflokki.
Keppni fór mjög vel fram og sáust margar góðar glímur.
Í karlaflokki varð hlutskarpastur Hákon Gunnarsson, ÚÍA en hann lagði alla andstæðinga sína örugglega.
Kristín Embla Guðjónsdóttir, ÚÍA, varð efst í kvennaflokki, einnig með fullt hús stiga.
Þau eru bæði ríkjandi glímukóngur og glímudrottning og vörðu því titilinn frá fyrra ári.
Hákon varð glímukóngur annað árið í röð, en Kristín var að vinna mótið í fimmta sinn.
Úrslit voru eftirfarandi:
Karlaflokkur
1. Hákon Gunnarsson ÚÍA
2. Þórður Páll Ólafsson KR
3. Gústaf Sæland KR
4. Gunnar Freyr Þórarinsson KR
5. Þórhallur Karl Ásmundsson
6.-7. Þórarinn Páll Þórarinsson GFD
6-7.Alexander Beck KR
8. Benóní Meldal GFD
Kvennaflokkur:
1. Kristín Embla Guðjónsdóttir ÚÍA
2. Sigurdís Sóley Lýðsdóttir GFD
3. Lovísa Ýr Jóhannsdóttir HSK