Glímusamband Íslands

Aðalsteinsbikarinn fór fram í íþróttahúsinu á Reyðarfirði 27. desember.
Við sama tilefni voru veitt tvö heiðursmerki Glímusambandsins.

Ásmundur Hálfdán Ásmundsson hlaut bronsmerki sambandsins fyrir áralangt starf í þágu glímunnar.
Ásmundur sat í stjórn Glímusambandsins 2019-2021 og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sambandið.
Ásmundur varð glímukóngur Íslands sex ár í röð 2016-2022 (2020 undanskilið v/Covid. Þar með skipaði hann sér sess á meðal sigursælustu glímumanna Íslands fyrr og síðar.
Hann hefur farið margar ferðir í gegnum samskipti við Keltneska fangbragðasambandið o.fl., bæði sem þjálfari og keppandi, og margsinnis hlotið verðlaun fyrir sinn árangur á í keltneskum fangbrögðum.

Atli Már Sigmarsson hlaut silfurmerki sambandsins fyrir áratuga starf í þágu glímunnar.
Hann sat í stjórn Glímusambandsins frá 2011-2015.
Atli Már hefur verið dómari síðan 2005 og fór strax að láta til sín taka á landsmótum. Hann hlaut A-réttindi landsdómara 2011 og hefur síðan verið meðal fremstu dómara landsins. Atli Már tók svo við formennsku Glímudómarafélags Íslands árið 2022.

          Þóroddur Helgason, Ásmundur Hálfdán Ásmundsson, Atli Már Sigmarsson, Þorvaldur Aðalsteinsson og Guðjón Magnússon