Formaður GLÍ Rögnvaldur Ólafsson og varaformaður GLÍ Kjartan Lárusson fóru og heim sóttu Kjartan Helgason í Haga á áttatíu og einsárs afmælis hans og sæmdu hann gullmerki GLÍ fyrir langt og mikið starf í þágu glímunnar.
Kjartan stundaði nám í Íþróttaskóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal veturinn 1961 -62 og kynntist þar glímunni.
Keppnis ferill hans nær yfir tuttugu ár og varð hann þrisvar sinnum Skjaldarhafi Skarphéðins 1981, 1984 og 1985. Hann stóð alltaf vel að glímunni. Kjartan sá um þjálfun glímumanna á Borg í Grímsnesi frá 1979 til 1987 með mjög góðum árangri, margir af bestu glímumönnum HSK fengu sína fyrstu kennslu hjá honum. Kjartan var lengi formaður glímunefndar HSK á annan áratug.
Stjórn GLÍ óskar honum innilega til hamingju með viðurkenninguna.