Skip to main content

Glímusamband Íslands

Á fundi stjórnar GLÍ þann 25. nóvember, var ákveðið að stefna að Glímuþingi í mars 2027. Þingstaður og dagsetning verður ákveðin á næstunni í samráði við sambandsaðila.
Ennfremur var á fundinum samþykkt breyting á reglugerð um Grunnskólamót. Bætt er við keppni í þriðja og fjórða bekk, en keppni í þeim bekkjum verður með öðru sniði en í eldri bekkjum og allir þátttakendur fá verðlaun.
Nýja reglugerð má sjá hér: Reglugerð um Grunnskólamót GLÍ