Fjórðungsglíma Suðurlands verður haldin í íþróttahúsinu Reykholti Bláskógabyggð föstudaginn 20. nóvember og hefst keppni kl. 17:30. Keppt verður í flokkum 10 ára og yngri, 11, 12, 13, 14 og 15 ára og fullorðinsflokkum 16 ára og eldri.
Rétt til þátttöku í Fjórðungsglímu Suðurlands eiga allir félagar íþrótta- og ungmennafélaga á svæðinu frá Skeiðará að Hvalfjarðarbotni að Reykjavík undanskilinni.
Skráningar berist til Stefáns Geirssonar formanns glímuráðs HSK á netfangið [email protected] til fimmtudagsins 19. nóvember.