Glímusamband Íslands

Aðalsteinsglíman (Fjórðungsglíma Austurlands) fór fram 27. desember sl. í íþróttahúsinu á Reyðarfirði. 
Glímumótið er haldið í minningu Aðalsteins Eiríkssonar, glímufrömuðar á Reyðarfirði.
Keppt er í barnaflokki og fullorðinsflokki. og hlýtur sigurvegarinn í fullorðinsflokki Aðalsteinsbikarinn.

Mótið fór mjög vel fram og var fjöldi keppenda að stíga sín fyrstu skref í glímukeppni.
Þau voru dyggilega studd af þeim fjölmörgu áhorfendum sem lögðu leið sína á mótið og bjuggu til einstaka stemningu.

Úrslit mótsins voru á þessa leið: